Fisktækniskólinn útskrifar Marel vinnslutækna

Útskirft Marel vinnslutækna 6.maí

Fisktækniskólinn útskrifar Marel vinnslutækna tilbúna til starfa í hátæknilegum matvælavinnslum framtíðarinnar

Útskrift Marel vinnslutækna hjá Fisktækniskóla Íslands fór fram síðastliðin föstudag 6. maí við  hátíðlega athöfn hjá Marel í Garðbæ. Þetta er sjötta sinn sem skólinn útskrifar Marel vinnslutækna í samstarfi við Marel sem sýnir hversu góð reynsla er komin á námið. Nemendum var veittur sérstakur viðurkenningarplatti og ásamt diplómu frá Marel við útskriftina. Að þessu sinni voru sjö sem útskrifuðust og við óskum þeim innilega til hamingju með flottan áfanga. Nemendur komu frá flottum fyrirtækjum víða af landinu, frá Ísfélaginu á Þórshöfn, Samherja á Dalvík, Jakobi og Valgeiri á Bolungavík , Codland og Einhamri í Grindavík. 

Árið 2021 endurnýjuðu Marel og Fisktækniskóli Íslands samning um áframhaldandi samstarf til næstu þriggja ára, þar sem Marel sér skólanum fyrir kennsluaðstöðu, aðgengi að tækjum og kennurum í þeim greinum sem lúta að tækjum Marels.

Framtíðin liggur í tækninámi, hátæknivinnsla framtíðarinnar kallar á vel menntað starfsfólk. Tæknistigið í íslenskum fiskvinnslum hefur aukist með tilkomu nýrrar tækni sem byggist á tölvustýrðum tækjum og gæðalínum. Það hefur því aldrei verið meiri þörf á sérhæfðu starfsfólki í fiskvinnslu með góðan bakgrunn í tækni og hugbúnaði.

„Hlutverk Marel vinnslutæknis er að sjá til þess að Marel tæki og hugbúnaður í vinnslunni vinni á sem skilvirkastan máta, þannig má skapa aukin verðmæti og hámarka afköst, samhliða því að halda góðum gæðum. Námið er stór þáttur í því að efla menntun og færni starfsfólks sem vinnur við hátæknilegar matvælavinnslur“.

Previous
Previous

Stór útskrift á Bíldudal

Next
Next

Hacking Reykjanes